top of page
Search
  • arnar7

Hlaðvarpsþættir um leyndardóma Hlíðarfjalls

Sagnalist vinnur þessa dagana að þáttagerð í samstarfi við Grenndargralið fyrir hlaðvarp / podcast. Um er að ræða fjóra þætti, hver um sig 35-45 mínútur að lengd, með áherslu á veru setuliðsins í Hlíðarfjalli á hernámsárunum. Í þáttunum verður m.a. rætt við sérfræðinga og fólk sem þekkir til sögunnar af eigin raun, rýnt í stríðsminjar sem fundist hafa í fjallinu og sagt frá Varðveislumönnum minjanna sem hafa farið fjölmarga leiðangra upp til fjalla á slóðir setuliðsins. Brynjar Karl Óttarsson er höfundur þáttanna.


„Ég tala stundum um gersemar í sögu og menningu heimabyggðar. Gersemar sem bíða þess að verða grafnar upp – munir og sögur. Eitthvað sem gerðist fyrir langa löngu á stað sem við höfum jafnvel fyrir augunum á hverjum einasta degi? Kannski mannvistaleifar sem leynast ofan í jörðinni – eða á yfirborðinu - og bíða þess að koma fram í dagsljósið, kannski eftir áratugi – eða jafnvel lengri tíma? Eitthvað sem var allan tímann nánast í túnjaðrinum heima. Eða vísbendingar um mannaferðir sem enginn núlifandi maður kann skil á og engar prentaðar heimildir eru til sem styðja við það hvað nákvæmlega fór fram. Þetta finnst mér allt spennandi pælingar sem urðu kveikjan að þáttunum um gersemarnar í Hlíðarfjalli“


Þættirnir Leyndardómar Hlíðarfjalls fara í loftið á hlaðvarpssíðu Grenndargralsins í ágúst næstkomandi (https://soundcloud.com/grenndargral).




29 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page