top of page
Search
  • arnar7

Sagnalist leitar upplýsinga um Herthu

Sagnalist vinnur nú að verkefni þar sem ætlunin er að endurskapa Akureyri eins og staðurinn leit úr árið 1862 þegar hann fékk kaupstaðarréttindi. Afraksturinn verður í formi sýndarveruleika þar sem áhugasamir munu meðal annars geta virt fyrir sér skipið Herthu á Pollinum.


Hertha var bryggskip, einnig nefnt skonnerta eða kútter. Skipið sigldi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í rúm 70 ár eða frá árinu 1817 til ársins 1888 þegar það brotnaði í spón undir Hvannadalabjargi, milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Skipið sést á þekktu málverki eftir Carl Baagöe frá árinu 1856/1857 þar sem það lúrir á Pollinum við Akureyri. Þá var skipið í eigu Gudmannsverslunarinnar en seinna var það í eigu Gránufélagsins.


Sagnalist leitar nú allra mögulegra heimilda sem í boði eru um innra og ytra útlit Herthu. Endursköpun Akureyrar 1862 er þannig unnin með hliðsjón af öllum bestu mögulegu heimildum sem fást í dag. Verkefnið er unnið í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.


Hertha á málverki Carl Baagöe frá 1856/57

22 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page