top of page
Search
arnar7

Sagnalist skráir og miðlar sögu John G. Kassos


Sagnalist hefur í samstarfi við Grenndargralið gefið út tvo nýja þætti í hlaðvarpsþáttaröðinni Leyndardómar Hlíðarfjalls. Í þáttaröðinni er fylgst með rannsóknum Varðveislumanna minjanna á dvöl setuliðsins í Eyjafirði á stríðsárunum. Í nýju þáttunum tveimur segir frá John G. Kassos, bandarískum flugmanni sem dvaldist á Melgerðismelum sumarið 1942. Í ágúst verða 80 ár liðin frá því að Kassos fórst með orrustuvél ameríska flughersins á Melunum.


Sagan um flugslysið hörmulega í Eyjafirði í ágúst 1942 hefur alla tíð verið sveipuð leynd. Í gegnum árin hafa spurningar vaknað um flugmanninn unga og orsök slyssins en fátt verið um svör. Hingað til hefur reynst erfitt að afla skriflegra heimilda og þá liggja ljósmyndir ekki á lausu. Smám saman gleymist sagan og sífellt færri kannast við John Kassos og slysið á Melunum. Sagnalist hefur rannsakað málið um nokkurt skeið. Þættirnir eru að miklu leyti byggðir á áður óbirtum heimildum. Rannsóknir Varðveislumanna á Melgerðismelum varpa þannig nýju ljósi á málið auk þess sem Sagnalist styðst við heimildir frá fjölskyldu John Kassos í Bandaríkjunum.


Sagnalist freistar þess að svipta hulunni af John Kassos og vélinni hans P-39 Airacobra. Hægt er að hlusta á þættina Leyndardómar Hlíðarfjalls – Kassos á hlaðvarpsveitu Grenndargralsins. Sagnalist hefur sett saman nokkrar söguvörður úr þáttunum sem hægt er að hlusta á með því að smella hér. Undir hljómar Kassos Theme sem kemur úr smiðju Sagnalistar.

33 views0 comments

Comments


bottom of page